Hafnarfjörður

Erindislaus meirihluti leggur á flótta

Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á undanförnum mánuðum, og raunar allt kjörtímabilið, barist fyrir því að frítt verði í Strætó fyrir öll börn og ungmenni í Hafnarfirði að 18 ára aldri. Sömuleiðis hefur jafnaðarfólk barist fyrir því að hafin verði uppbygging á íbúðum fyrir eldra fólk á Sólvangssvæðinu. Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks skellir hins vegar skollaeyrum við þessum brýnu hagsmunamálum barna og ungmenna og eldra fólks í bænum og vísar tillögum okkar jafnharðan frá í bæjarstjórn. Enda hafa umræður í bæjarstjórn leitt í ljós að meirihlutinn kemur algjörlega tómhentur að borðinu, hefur ekkert til málanna að leggja og leggur á flótta undan umræðunni. Og nú er örvæntingin og málefnafátæktin orðin slík að forseti er látinn beita klækjabrögðum til þess að koma í veg fyrir eðlilega og lýðræðislega umræðu í bæjarstjórn. 

Á bæjarstjórnarfundi í vikunni keyrði svo um þverbak þegar forseti bæjarstjórnar, sem hafði ráðfært sig við félaga sína í Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki, lagði til að fyrrnefndar tillögur okkar í Samfylkingunni yrðu teknar af dagskrá fundarins. Og hver var ástæðan? Jú, þær hefðu áður verið ræddar í bæjarstjórn. Við mótmæltum að sjálfsögðu harðlega þessum fordæmalausu og ólýðræðislegu vinnubrögðum forseta bæjarstjórnar og meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks sem skapar með þessu hættulegt fordæmi til framtíðar. Fordæmi þar sem meirihluti bæjarstjórnar hverju sinni getur einfaldlega kippt af dagskrá málum minnihlutans, sem ratað hafa á útsenda dagskrá eftir réttum leiðum, líki meirihlutanum ekki málefnið eða finnist umræðan óþægileg. Það sér hver maður að þetta getur aldrei gengið upp. 

Það er kannski hægt að hafa samúð með fulltrúum meirihlutans hvað þetta varðar þar sem þessi tvö mál varpa ljósi á aðgerðaleysi hans á kjörtímabilinu. Frítt í strætó fyrir börn og ungmenni að 18 ára aldri hefur verið til umræðu allt kjörtímabilið og Samfylkingin lagt það til við afgreiðslu hverrar fjárhagsáætlunar á kjörtímabilinu og Ungmennaráð Hafnarfjarðar sömuleiðis lagt það til. Foreldraráð Hafnarfjarðar hefur einnig lýst yfir stuðningi við markmið tillögunnar. Við þetta bætist að nokkrir fulltrúar meirihlutans hafa lýst yfir stuðningi við tillöguna efnislega en taka fullan þátt í tafa-og biðleikjum meirihlutans. 

Afstaða meirihlutans til tillögunnar um íbúðir fyrir eldra fólk á Sólvangssvæðinu rammar svo snyrtilega inn erindisleysi hans á kjörtímabilinu. Í upphafi þess lagði meirihlutinn til að uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk, m.a. á Sólvangssvæðinu, yrði hraðað og sett í forgang. En hver er niðurstaðan í lok kjörtímabils? Jú, nú á lokametrum kjörtímabilsins, að fjórum árum liðnum, ætlar meirihlutinn að fara í greiningu á raunþörf og uppsafnaðri þörf vegna íbúða fyrir eldri íbúa.

Hvað leiða þessi fordæmalausu og gerræðislegu vinnubrögð í ljós? Þau staðfesta einfaldlega að meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks er án erindis og leggur á flótta undan efnislegri umræðu um hagsmunamál bæjarbúa við hvert tækifæri. Þessu verður að breyta. Og það er tækifæri til þess í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí næstkomandi. Samfylkingin hefur sýnt það með málflutningi sínum á kjörtímabilinu, sem lýkur senn, að við erum með skýra sýn og stefnu fyrir Hafnarfjörð. Við hræðumst ekki umræðu um mál sem snúa að mikilvægum hagsmunum bæjarbúa og munum ekki stunda klækjabrögð eins og núverandi meirihluti gerir. Við ætlum hins vegar að láta verkin tala í þágu allra Hafnfirðinga með opinni og lýðræðislegri umræðu fáum við til þess stuðning og umboð frá kjósendum í kosningunum 16. maí næstkomandi. 

Greinin birtist á Vísi 27. mars 2026

Árni Rúnar Þorvaldsson

Ég er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og er fulltrúi flokksins í fjölskylduráði. Ég skipaði 3. sætið á lista Samfylkingarinnar í sveitarstjórnarkosningum vorið 2022 en þá vann Samfylkingin glæsilegan sigur og fékk fjóra bæjarfulltrúa. Jafnframt vinn ég sem grunnskólakennari við Smáraskóla í Kópavogi. Ég hef fjölbreytta reynslu af félagsstörfum bæði innan íþróttahreyfingarinnar og stéttarfélags kennara. Ég er kvæntur Ragnhildi Einarsdóttur, deildarstjóra í Lækjarskóla og saman eigum við þrjú börn.

Árni Rúnar

Recent Posts

Þörf á tafarlausum framkvæmdum í samgöngumálum Hafnfirðinga 

Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað sett samgöngumál í bænum á dagskrá og…

5 dagar ago

Frítt í Strætó fyrir börn og ung­menni – ó­líkt hafast menn að

Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað lagt fram tillögu þess efnis að frítt…

2 mánuðir ago

Flóttamannavegurinn er loksins fundinn

Hvar er Flóttamannavegurinn var fyrirsögn greinar eftir fyrrverandi bæjarstjóra Hafnarfjarðar og núverandi þingmann Sjálfstæðisflokksins, Rósu…

2 mánuðir ago

Þörf á nýrri stefnu fyrir Hafnarfjörð

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar í byrjun mánaðarins lagði Samfylkingin fram fjölda tillagna sem allar stefndu að…

2 mánuðir ago

Glansmynd án innihalds

Síðasta fjárhagsáætlun meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Samfylkingin lagði fram fjölda tillagna við afgreiðslu…

4 mánuðir ago

Húsnæðismál Félags eldri borgara og verkleysi Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks

Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur brugðist eldri borgurum í Hafnarfirði vegna húsnæðismála Félags eldri borgara…

6 mánuðir ago