Húsnæði. Ljósmynd: Speedy McVroom/Pixabay.
Húsnæðiskostnaður er einn stærsti útgjaldaliður heimila. Því er húsnæði á viðráðanlegum kjörum eitt mikilvægasta kjaramál fólks. Allar fjölskyldur eiga rétt á húsnæðisöryggi. Undanfarin ár hefur staðan á húsnæðismarkaði einkennst af óstöðugleika, verðhækkunum og ófyrirsjáanleika um leigu. Slíkt ástand skapar óöryggi og ýtir undir ójöfnuð og fátækt. Því er mikilvægt að skipta um kúrs og Samfylkingin mun hafa forystu um nauðsynlega stefnubreytingu á næsta kjörtímabili.
Ungt fólk á erfitt með að fóta sig á húsnæðismarkaði þegar húsnæðisverð rýkur upp og það hefur komið sérstaklega illa niður á þeim efnaminni. Samfylkingin ætlar að bregðast við þessu með markvissum aðgerðum til þess að stuðla að auknu öryggi fyrir ungt fólk á erfiðum og óstöðugum húsnæðismarkaði.
Á næsta kjörtímabili ætlar Samfylkingin, í samstarfi við verkalýðshreyfinguna og húsnæðisfélög án hagnaðarsjónarmiða, að byggja 1000 íbúðir á hverju ári en það kallar á tvöföldun stofnframlaga. Með þessu móti fjölgum við íbúðum um allt land fyrir tekjulægri hópa og temprum húsnæðisverðið.
í Hafnarfirði hefur metnaðarleysi meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í húsnæðismálum orðið til þess að Hafnafjörður hefur undanfarin ár stöðugt rekið lestina á meðal sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hvað varðar íbúðir í byggingu. Nú er svo komið að stefnu- og verkleysi meirihlutans hefur leitt til fólksfækkunar í fyrsta sinn í tugi ára.
Grundvallarforsenda heilbrigðs húsnæðismarkaðs er húsnæði á viðráðanlegum kjörum sem tryggir fjölskyldum húsnæðisöryggi. Sagan sýnir að Jafnaðarmönnum er best treystandi til þess að stuðla að nauðsynlegum breytingum í húsnæðismálum. Af þessum sökum er mikilvægt að tryggja Samfylkingunni öflugan stuðning og góða kosningu í alþingiskosningunum 25. september nk. svo hægt verði að mynda ríkisstjórn um breytta og betri forgangsröðun í húsnæðismálum.
Greinin birtist í Fjarðarfréttum 31.08.2021
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur lagt til við hverja afgreiðslu fjárhagsáætlunar á kjörtímabilinu að frítt verði…
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á undanförnum mánuðum, og raunar allt kjörtímabilið, barist fyrir því að…
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað sett samgöngumál í bænum á dagskrá og…
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað lagt fram tillögu þess efnis að frítt…
Hvar er Flóttamannavegurinn var fyrirsögn greinar eftir fyrrverandi bæjarstjóra Hafnarfjarðar og núverandi þingmann Sjálfstæðisflokksins, Rósu…
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar í byrjun mánaðarins lagði Samfylkingin fram fjölda tillagna sem allar stefndu að…