Hafnarfjörður. Ljósmynd: Guðný Árnadóttir.
Sveitarstjórnarkosningar fara fram 14. maí á þessu ári. Flokkar og frambjóðendur leggja þá fram stefnu sína og framtíðarsýn fyrir bæinn og reyna að svara spurningunni um í hvers konar bæ við viljum búa. Ég býð mig fram í 1. sætið á lista Samfylkingarinnar í flokksvali flokksins sem fram fer 12. febrúar. Því ætla ég í stuttu máli að lýsa því hvernig bæ ég vil sjá.
Virkt íbúalýðræði er ein af grunnstoðum opinnar stjórnsýslu. Ávinningurinn af samráðsmenningu innan sveitarfélags er margvíslegur. Hún ýtir undir ánægju íbúa og virka þátttöku þeirra í starfsemi, stefnumótun og ákvarðanatöku sveitarfélagsins. Bæjarfélagið á því að leita meira til íbúa og auka þátttöku þeirra í stjórnun og stefnumótun sveitarfélagsins.
Með sterkri almennri velferðarþjónustu er lagður grunnur að réttlátu samfélagi. Mikilvægt er að í bæjarstjórn veljist fólk sem er umhugað um velferðarþjónustuna, hópana sem nýta sér hana og fólkið sem starfar innan hennar. Einnig lít ég svo á að það sé hlutverk bæjarstjórnar að jafna byrðarnar í samfélaginu með því að létta álögur á barnafjölskyldum og tekjulægri hópum.
Menntastefna bæjarins á að byggja á gildum um jöfnuð, félagslegt réttlæti og mannréttindi. Verkefni skólanna er að jafna stöðu nemenda þannig að allir nemendur, óháð efnahag, geti þroskað hæfileika sína til þess að geta nýtt tækifærin sem þeim bjóðast. Það er því grundvallaratriði að halda gjaldtöku í lágmarki í skólastarfi. Auk þess eiga öll börn og unglingar að geta tekið þátt í skipulögðu frístundastarfi óháð efnahag.
Samgöngu- og skipulagsmál tengjast nánum böndum og samþætting þeirra er lykilatriði fyrir þróun byggðar. Skipulagið á að þróast á forsendum íbúanna, fjölbreytts mannlífs og lífsgæða. Í þessu samhengi skiptir uppbygging Borgarlínunnar og efling almenningssamgangna meginhlutverki. Skipulag bæjarins á að vera vistvænt, styðja við lýðheilsu og stuðla að félagslegri blöndun.
Ég ber almannahag fyrir brjósti og er tilbúinn til þess að vinna að hag bæjarbúa með þessi gildi í farteskinu. Ég óska eftir stuðningi jafnaðarfólks í 1. sætið á lista Samfylkingarinnar í flokksvalinu 12. febrúar og er tilbúinn til þess að leiða Samfylkinguna til sigurs í bæjarstjórnarkosningum í vor.
Greinin birtist fyrst í Fjarðarfréttum 1. febrúar 2022
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur lagt til við hverja afgreiðslu fjárhagsáætlunar á kjörtímabilinu að frítt verði…
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á undanförnum mánuðum, og raunar allt kjörtímabilið, barist fyrir því að…
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað sett samgöngumál í bænum á dagskrá og…
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað lagt fram tillögu þess efnis að frítt…
Hvar er Flóttamannavegurinn var fyrirsögn greinar eftir fyrrverandi bæjarstjóra Hafnarfjarðar og núverandi þingmann Sjálfstæðisflokksins, Rósu…
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar í byrjun mánaðarins lagði Samfylkingin fram fjölda tillagna sem allar stefndu að…