Stjórnmál

Íbúalýðræði – forsenda vandaðra ákvarðana

Virkt íbúasamráð er forsenda farsællar ákvarðanatöku. Meiri sátt ríkir um ákvarðanir bæjarstjórnar sem byggja á virku samráði – í stórum málum sem smáum.

Áherslan á lýðræði og lýðræðisleg vinnubrögð er grunnstoð í stefnu Samfylkingarinnar. Í huga jafnaðarmanna er lýðræðið meira en bara kosningar á fjögurra ára fresti. Lýðræðisleg vinnubrögð fela í sér margvíslega möguleika fyrir almenning til að hafa áhrif á gang mála og ákvarðanir stjórnvalda á milli kosninga, allt frá einföldum hverfafundum yfir í allsherjar íbúakosningar um stærri mál.

Stór skref stigin undir forystu Samfylkingarinnar

Þegar Samfylkingin stýrði málum í Hafnarfirði varð bærinn leiðandi á meðal sveitarfélaga í þróun lýðæðismála og nýsköpun í stjórnsýslu. Þá voru stigin stór skref til aukinnar þátttöku íbúa í mikilvægum ákvörðunum. Árið 2002 var bæjarbúum tryggður réttur til þess að krefjast atkvæðagreiðslu um einstök mál. Einnig höfðu jafnaðarmenn forgöngu um að stofna notenda- og ráðgjafaráð og í dag eru starfandi ungmenna- og öldungaráð og ráðgjafaráð í málefnum fatlaðs fólks og fjölmenningaráð. Aðkoma ráðanna að málum sem varða hagsmuni þeirra er ómetanleg og við eigum að halda áfram styðja þau og bæta umgjörð þeirra til að sinna verkum sínum. Jafnaðarmenn vísa því með stolti til fyrri verka sinna í lýðræðismálum í Hafnarfirði og við ætlum að gera enn betur.

Aukum þátttöku íbúa

Ávinningurinn af samráðsmenningu innan sveitarfélags er margvíslegur. Slík menning ýtir undir ánægju íbúa og virkari þátttöku þeirra í starfsemi, stefnumótun og ákvarðanatöku sveitarfélagsins. Það er því til mikils að vinna og með markvissum aðgerðum eigum við hiklaust að stefna að því að leita meira til íbúa og auka þátttöku þeirra í stjórnun og stefnumótun sveitarfélagsins. Og það munu jafnaðarmenn gera í meirihluta á næsta kjörtímabili – að sjálfsögðu.

Greinin birtist í Fjarðarfréttum 4. maí 2022

Árni Rúnar

Recent Posts

Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði 

Samfylkingin í Hafnarfirði hefur lagt til við hverja afgreiðslu fjárhagsáætlunar á kjörtímabilinu að frítt verði…

2 vikur ago

Erindislaus meirihluti leggur á flótta

Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á undanförnum mánuðum, og raunar allt kjörtímabilið, barist fyrir því að…

3 vikur ago

Þörf á tafarlausum framkvæmdum í samgöngumálum Hafnfirðinga 

Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað sett samgöngumál í bænum á dagskrá og…

3 vikur ago

Frítt í Strætó fyrir börn og ung­menni – ó­líkt hafast menn að

Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað lagt fram tillögu þess efnis að frítt…

2 mánuðir ago

Flóttamannavegurinn er loksins fundinn

Hvar er Flóttamannavegurinn var fyrirsögn greinar eftir fyrrverandi bæjarstjóra Hafnarfjarðar og núverandi þingmann Sjálfstæðisflokksins, Rósu…

2 mánuðir ago

Þörf á nýrri stefnu fyrir Hafnarfjörð

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar í byrjun mánaðarins lagði Samfylkingin fram fjölda tillagna sem allar stefndu að…

3 mánuðir ago