Stjórnmál

Sveitarfélögin og íbúalýðræði

Virkt íbúalýðræði á að vera ein af grunnstoðum í starfsemi hvers sveitarfélags. Stjórnsýsla sveitarfélaga og ákvarðanir bæjarstjórna eiga að byggja á því. Bæjarstjórn ber því að tryggja lýðræðislega aðkomu íbúa að allri stefnumótun og ákvarðanatöku og á ávallt að vera vakandi fyrir nýjum leiðum til íbúasamráðs og þátttöku íbúa.

Mikilvægi notenda- og ráðgjafaráða

Notenda- og ráðgjafaráð, eins og öldungaráð, ungmennaráð, fjölmenningarráð og ráðgjafaráð fatlaðs fólks skipa sífellt stærri sess í stjórnsýslu sveitarfélaga. Í Hafnarfirði hafa þessi ráð verið virk og látið gott af sér leiða en nauðsynlegt er að halda áfram að bæta umgjörð þeirra þannig að þeim verði gert kleift að sinna sínu mikilvæga hlutverki enn betur.

Skipulagsmál og íbúasamráð

Mikilvægi íbúasamráðs í skipulagsmálum verður ekki ofmetið. Virkt samráð við íbúa er forsenda farsællar þróunar byggðar og skipulags sveitarfélaga. Undir forystu Sjálfstæðisflokksins á undanförnum átta árum í skipulagsmálum Í Hafnarfirði höfum við alltof oft séð þeim klúðrað vegna klaufalegra vinnubragða, hringlanda og skorts á samráði. Þessu verður að breyta.

Aukin áhrif íbúa á nærumhverfið

Íbúarnir eru sérfræðingar í sínu nærumhverfi. Þess vegna eiga þeir að hafa sem mest um þróun þess að segja. Það stuðlar að betri ákvarðanatöku og ef rétt er á málum haldið getur samráðsferlið skapað betri sátt um ákvarðanirnar. Skoða verður leiðir til þess fjölga möguleikum og tækifærum íbúa til að hafa sem mest áhrif á nærumhverfi sitt.

Stóru ákvarðanirnar og íbúakosningar

Í stórum ákvörðunum bæjarstjórnar sem varða hagsmuni allra bæjarbúa ber ávallt að meta hvort leita eigi til kjósenda með íbúakosningu. Kjörnum fulltrúum er tamt að verja völd sín en þeir verða að muna að þeir sækja umboð sitt til kjósenda og þeir eiga óhikað að leita til þeirra í stórum málum. Íbúakosningin um stækkun álversins í Straumsvík er dæmi um velheppnað íbúalýðræði og Samfylkingin átti frumkvæði að því. Á yfirstandandi kjörtímabili hafnaði meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks að leita til kjósenda um söluna á HS Veitum. Þar var á ferðinni mál þar sem aðkoma kjósenda var nauðsynleg, en meirihlutinn treysti sér ekki í þá vegferð – því miður.

Aukum þátttöku íbúa

Ávinningurinn af samráðsmenningu innan sveitarfélags er margvíslegur. Slík menning ýtir undir ánægju íbúa og virkari þátttöku þeirra í starfsemi, stefnumótun og ákvarðanatöku sveitarfélagsins. Það er því til mikils að vinna og með markvissum aðgerðum eigum við hiklaust að stefna að því að leita meira til íbúa og auka þátttöku þeirra í stjórnun og stefnumótun sveitarfélagsins.

Greinin birtist fyrst á Vísi.is 21. janúar 2022.

Árni Rúnar

Recent Posts

Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði 

Samfylkingin í Hafnarfirði hefur lagt til við hverja afgreiðslu fjárhagsáætlunar á kjörtímabilinu að frítt verði…

2 vikur ago

Erindislaus meirihluti leggur á flótta

Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á undanförnum mánuðum, og raunar allt kjörtímabilið, barist fyrir því að…

3 vikur ago

Þörf á tafarlausum framkvæmdum í samgöngumálum Hafnfirðinga 

Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað sett samgöngumál í bænum á dagskrá og…

3 vikur ago

Frítt í Strætó fyrir börn og ung­menni – ó­líkt hafast menn að

Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað lagt fram tillögu þess efnis að frítt…

2 mánuðir ago

Flóttamannavegurinn er loksins fundinn

Hvar er Flóttamannavegurinn var fyrirsögn greinar eftir fyrrverandi bæjarstjóra Hafnarfjarðar og núverandi þingmann Sjálfstæðisflokksins, Rósu…

2 mánuðir ago

Þörf á nýrri stefnu fyrir Hafnarfjörð

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar í byrjun mánaðarins lagði Samfylkingin fram fjölda tillagna sem allar stefndu að…

3 mánuðir ago