Hafnarfjörður

Félagslegt húsnæði og biðlistarnir í Hafnarfirði

Það er grundvallarskylda sveitarfélaga að sjá fólki fyrir húsnæði sem af einhverjum ástæðum þarf á stuðningi að halda í þeim efnum. Árið 2020 voru þrjár íbúðir keyptar inn í félagslega íbúðakerfið og 6 í fyrra. Slæleg frammistaða bæjarins í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á undanförnum átta árum undir stjórn Sjálfstæðisflokksins spilar að einhverju leyti þarna inn í því íbúðirnar hafa hreinlega ekki verið til í bænum. Hér er því sannarlega verk að vinna á næsta kjörtímabili. 

Barátta um grundvallarmannréttindi

Margt fólk í mjög erfiðum aðstæðum er á biðlista eftir félagslegu húsnæði og þarfnast úrlausnar sem fyrst. Það býr í foreldrahúsum, ósamþykktum íbúðum í iðnaðarhverfum, í leiguíbúðum þar sem 60-70% af ráðstöfunartekjum þess fer í leiguna og í íbúðum sem mæta ekki þörfum þess. Í Kastljósi í gærkvöldi sáum við umfjöllun um síðastnefnda dæmið. Þar var talað við öryrkja með lögheimili í Hafnarfirði sem er á biðlista eftir húsnæði hjá Hafnarfjarðarbæ. Hann veit ekkert um það hvenær röðin kemur að honum. Eftir að hafa upplifað gríðarlegt áfall vegna veikinda, eins og viðmælandi Kastljóssins í gær, þá er ömurlegt til þess að vita að við taki barátta við kerfið um grundvallarmannréttindi. Þetta er óásættanleg staða með öllu.

Bæjarstjóri skilar auðu í umræðunni

Í umræðum í Kastljósi ræddu formaður Öryrkjabandalagsins og bæjarstjóri Hafnarfjarðar um búsetuúrræði fyrir fatlað fólk og félagslegt húsnæði. Í máli bæjarstjóra kom fram að hann telur það stórkostlegt átak af hálfu bæjarins að hafa bætt 40 íbúðum inn í félagslega íbúðarkerfið á síðustu sjö árum, eða sem nemur tæpum 6 íbúðum á ári að meðaltali. Niðurstaðan af þessu stórkostlega átaki bæjarstjóra er hins vegar sú að um 100 einstaklingar og fjölskyldur eru á biðlista eftir félagslegu húsnæði og stór hluti þeirra er í brýnni þörf, líkt og við sáum dæmi um í Kastljósi gærkvöldsins.

Bæjarstjóri ver stefnu Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ og á Seltjarnarnesi

Það er því deginum ljósara að það hefur ekki verið nóg gert undanfarin ár í Hafnarfirði. Hér tala tölurnar sínu máli um frammistöðu Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði í þessum mikilvæga málaflokki. Út yfir tók þó þegar bæjarstjóri Hafnarfjarðar varði sérstaklega frammistöðu Garðabæjar og Seltjarnarness í þessum málum því að í þeim sveitarfélögum birtist stefna Sjálfstæðisflokksins einmitt með hvað skýrustum hætti. Stefna sem felst í því að lækka skatta og álögur á hátekjufólkið og efnamesta fólkið. Það kemur svo niður á þjónustu sveitarfélaganna við þá hópa sem helst þurfa á henni að halda. Og vandanum er svo velt yfir á nærliggjandi sveitarfélög. Þetta gat bæjarstjóri Hafnarfjarðar ekki gagnrýnt í Kastljósinu í gær, enda um stefnu Sjálfstæðisflokksins að ræða. 

Rjúfum kyrrstöðuna

Megin niðurstaðan af umræðum Kastljóssins í gær er því sú að Hafnarfjörður, undir forystu Sjálfstæðisflokksins, hefur engan veginn staðið sig í þessum málefnum. Þörf er á stórkostlegu átaki á næsta kjörtímabili til að fjölga íbúðum í félagslega íbúðarkerfinu til að stytta biðlistana og bið fólks á þeim. Þörf er á nýjum hugmyndum sem bornar eru uppi af fólki sem hefur raunverulegan áhuga á málinu og veit hversu mikilvæg húsnæðismálin eru fyrir fólk í erfiðum aðstæðum. Samfylkingin mun setja húsnæðismál í víðu samhengi í algjöran forgang á næsta kjörtímabili og rjúfa þá kyrrstöðu sem einkennt hefur málaflokkinn undanfarin ár undir forystu Sjálfstæðisflokksins í bænum.

Greinin birtist fyrst á Vísi.is 22. febrúar 2022.

 

Árni Rúnar

Recent Posts

Samfylkingin setur málefni eldri íbúa á dagskrá

Á kjörtímabilinu hefur Samfylkingin ítrekað lagt fram tillögu um að hefja undirbúning uppbyggingar á lífsgæðaíbúðum…

7 mánuðir ago

Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði

Samfylkingin í Hafnarfirði hefur lagt til við hverja afgreiðslu fjárhagsáætlunar á kjörtímabilinu að frítt verði…

8 mánuðir ago

Erindislaus meirihluti leggur á flótta

Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á undanförnum mánuðum, og raunar allt kjörtímabilið, barist fyrir því að…

8 mánuðir ago

Þörf á tafarlausum framkvæmdum í samgöngumálum Hafnfirðinga

Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað sett samgöngumál í bænum á dagskrá og…

8 mánuðir ago

Frítt í Strætó fyrir börn og ung­menni – ó­líkt hafast menn að

Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað lagt fram tillögu þess efnis að frítt…

10 mánuðir ago

Flóttamannavegurinn er loksins fundinn

Hvar er Flóttamannavegurinn var fyrirsögn greinar eftir fyrrverandi bæjarstjóra Hafnarfjarðar og núverandi þingmann Sjálfstæðisflokksins, Rósu…

10 mánuðir ago