Stuðningur. Ljósmynd: Anemone123/Pixabay.
Öll þjónusta við fatlað fólk á að grundvallast á virðingu fyrir sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétti hvers og eins. Sveitarfélagið á að styðja fatlað fólk til sjálfstæðs lífs þar sem full þátttaka í samfélaginu er markmiðið. Fjölbreytt og sveigjanleg þjónusta sem er sniðin að þörfum fatlaðs fólks er lykilforsenda þess að þetta markmið náist. Kerfið á vera til fyrir fólkið en ekki öfugt.
NPA samningar – mikilvægt þjónustuform
Á síðustu árum hefur notendastýrð persónuleg aðstoð rutt sér til rúms í þjónustu við fatlað fólk, svokallaðir NPA samningar. Þeir styðja við sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétt fatlaðs fólks vegna þess að í þeim er það þjónustuþeginn sem stýrir þjónustunni. Sveitarfélagið á að styðja við NPA samningana og halda áfram að þróa þá í þágu fatlaðs fólks. Í Hafnarfirði hefur meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks greitt lægri jafnaðartaxta fyrir NPA samninga en gert er í nágrannasveitarfélögum. Það er óásættanlegt og því mun Samfylkingin breyta að loknum kosningum þegar við höfum tekið við stjórnartaumunum.
Alltof margt fatlað fólk á biðlista eftir húsnæði við hæfi
Húsnæði við hæfi eru grundvallarmannréttindi. Það er skylda sveitarfélagsins að tryggja fötluðu fólki aðgang að húsnæði við hæfi. Alltof margt fatlað fólk í Hafnarfirði er á biðlista eftir húsnæði við hæfi. Einnig býr of margt fatlað fólk í óviðunandi húsnæði. Á næsta kjörtímabili mun Samfylkingin ráðast í stórátak í húsnæðismálum fatlaðs fólks, bæði í gegnum fjölgun félagslegra íbúða hjá bæjarfélaginu sem og í gegnum uppbyggingu íbúðakjarna fyrir fatlað fólk. Hér er um slíkt grundvallarmál að ræða að það þolir enga bið.
Greinin birtist í Fjarðarfréttum 6. apríl 2022.
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur lagt til við hverja afgreiðslu fjárhagsáætlunar á kjörtímabilinu að frítt verði…
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á undanförnum mánuðum, og raunar allt kjörtímabilið, barist fyrir því að…
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað sett samgöngumál í bænum á dagskrá og…
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað lagt fram tillögu þess efnis að frítt…
Hvar er Flóttamannavegurinn var fyrirsögn greinar eftir fyrrverandi bæjarstjóra Hafnarfjarðar og núverandi þingmann Sjálfstæðisflokksins, Rósu…
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar í byrjun mánaðarins lagði Samfylkingin fram fjölda tillagna sem allar stefndu að…