Hafnarfjörður. Ljósmynd: Guðný Árnadóttir.
Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hafði lítið fram að færa um gerð fjárhagsáætlunar á fundi bæjarstjórnar í gær. Á fundinum minntum við jafnaðarmenn á tillögu okkar frá því í sumar um að bæjarstjórn gæfi skýr fyrirheit þess efnis að gríðarleg hækkun fasteignamats leiði ekki sjálfkrafa til stórhækkunar á fasteignaskatti. Við munum í fjárhagsáætlunarvinnunni fylgja því fast eftir að álögur verði þær sömu á næsta ári og þær eru í ár að teknu tilliti til almennra verðlagsbreytinga til þess að verja fjölskyldur og fyrirtæki í Hafnarfirði fyrir þessari bóluhækkun á fasteignamatinu. Viðbrögð meirihlutans voru máttlítil og engin skýr svör að fá og engu líkara en að þessu stóra máli hefði enginn gaumur verið gefinn. Og því er ekkert sem hönd er á festandi varðandi fyrirætlanir meirihlutans með fasteignaskatta við upphaf fjárhagsáætlunarvinnunnar og meirihlutinn alls ekki tilbúinn að taka af öll tvímæli um þetta og gefa bæjarbúum sk´ýrt til kynna að auknar álögur verði ekki að veruleika á komandi ári.
Á fundinum spurði ég fulltrúa meirihlutans einnig út í þau fyrirheit sem gefin eru í málefnasamningi flokkanna um markviss skref í átt að gjaldfrjálsum skólamáltíðum og um að frístundastyrkur verði fyrir börn frá þriggja ára aldri. Svörin við þessum spurningum voru jafn loðin og innihaldsrýr og um fasteignaskattana, ekkert sem hönd var á festandi, allt í skoðun og myndi koma í ljós. Pólitískar umræður eru áskorun í bæjarstjórn Hafnarfjarðar þegar meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks mætir alltaf tómhentur til leiks.
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur lagt til við hverja afgreiðslu fjárhagsáætlunar á kjörtímabilinu að frítt verði…
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á undanförnum mánuðum, og raunar allt kjörtímabilið, barist fyrir því að…
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað sett samgöngumál í bænum á dagskrá og…
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað lagt fram tillögu þess efnis að frítt…
Hvar er Flóttamannavegurinn var fyrirsögn greinar eftir fyrrverandi bæjarstjóra Hafnarfjarðar og núverandi þingmann Sjálfstæðisflokksins, Rósu…
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar í byrjun mánaðarins lagði Samfylkingin fram fjölda tillagna sem allar stefndu að…