Samfylkingin í Hafnarfirði hefur lagt til við hverja afgreiðslu fjárhagsáætlunar á kjörtímabilinu að frítt verði í strætó fyrir börn og ungmenni að 18 ára aldri. Þannig drögum við úr skutli foreldra og minnkum umferðarálag, drögum úr álögum á fjölskyldur, jöfnum tækifæri barna og ungmenna og styðjum við sjálfstæði þeirra. Hingað til hefur meirihluti Framsóknar- og…
Lesa meira Nokkrar staðreyndir um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á undanförnum mánuðum, og raunar allt kjörtímabilið, barist fyrir því að frítt verði í Strætó fyrir öll börn og ungmenni í Hafnarfirði að 18 ára aldri. Sömuleiðis hefur jafnaðarfólk barist fyrir því að hafin verði uppbygging á íbúðum fyrir eldra fólk á Sólvangssvæðinu. Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks skellir hins vegar skollaeyrum…
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað sett samgöngumál í bænum á dagskrá og barist fyrir úrbótum í þeim. Hafnfirðingar vita sem er að samgönguinnviðir í bænum eru víða komnir að þolmörkum og að þörf er á tafarlausum aðgerðum. Fulltrúar Samfylkingarinnar hafa margoft bent á þessar staðreyndir á kjörtímabilinu en oftar en ekki talað…
Lesa meira Þörf á tafarlausum framkvæmdum í samgöngumálum Hafnfirðinga
Samfylkingin í Hafnarfirði hefur á yfirstandandi kjörtímabili ítrekað lagt fram tillögu þess efnis að frítt verði í Strætó fyrir ungmenni í bænum. Við afgreiðslu allra fjárhagsáætlana kjörtímabilsins hafa fulltrúar jafnaðarfólks í bæjarstjórn lagt fram þessa tillögu eða fjórum sinnum og jafnoft hefur meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hafnað tillögunni án nokkurrar umræðu eða rökstuðnings. Ungmennaráð Hafnarfjarðar…
Lesa meira Frítt í Strætó fyrir börn og ungmenni – ólíkt hafast menn að
Hvar er Flóttamannavegurinn var fyrirsögn greinar eftir fyrrverandi bæjarstjóra Hafnarfjarðar og núverandi þingmann Sjálfstæðisflokksins, Rósu Guðbjartsdóttur sem birtist í byrjun vikunnar. Svarið við þeirri spurningu er að vegurinn er loksins fundinn þökk sé ríkisstjórninni og málflutningi Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Nýtilkominn áhugi Sjálfstæðisflokksins, sem fór einnig fram á umræðu um málið á fundi bæjarstjórnar í…
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar í byrjun mánaðarins lagði Samfylkingin fram fjölda tillagna sem allar stefndu að því að bæta hag og velferð Hafnfirðinga og að einfalda daglegt líf fólks í samræmi við upplegg málefnavinnu Samfylkingarinnar í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Tillögurnar voru fullfjármagnaðar og endurspegla skýra framtíðarsýn Samfylkingarinnar fyrir Hafnarfjörð. Þær sneru meðal annars að uppbyggingu fjölbreytts húsnæðis…
Síðasta fjárhagsáætlun meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Samfylkingin lagði fram fjölda tillagna við afgreiðslu fjárhagsáætlunar Hafnarfjarðar í byrjun mánaðarins. Tillögurnar voru fullfjármagnaðar og áttu það allar sammerkt að miða að því að efla Hafnarfjörð og bæta hag og velferð íbúa. Þær endurspegluðu einnig skýra sýn Samfylkingarinnar fyrir bæjarfélagið og íbúa til framtíðar og sneru…
Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur brugðist eldri borgurum í Hafnarfirði vegna húsnæðismála Félags eldri borgara í Hafnarfirði, FEBH. Það kom berlega í ljós í umræðum um málið á síðasta bæjarstjórnarfundi. Átakanlegt var að hlýða á málflutning fulltrúa meirihlutans í málinu og augljóst að hann hafði vondan málstað að verja. Þörf á alvöru viðbrögðum í stað…
Lesa meira Húsnæðismál Félags eldri borgara og verkleysi Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks
Síðastliðna helgi hélt Tónlistarskóli Hafnarfjarðar upp á 75 ára afmæli sitt með tvennum glæsilegum tónleikum í íþróttahúsinu við Strandgötu þar sem nemendur og starfsfólk skólans lék listir sínar. Tónleikarnir báru sannarlega öflugu og faglegu starfi gott vitni. Óhætt er að segja að framsýni hafi legið að baki þeirri ákvörðun að stofna Tónlistarskóla Hafnarfjarðar árið 1950…
Öll getum við lent í því að eiga í erfiðleikum með að fóta okkur í nýjum veruleika. Það hefur verið hlutskipti fulltrúa stjórnarandstöðuflokkanna þriggja; Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Miðflokks í umræðunni um leiðréttingu veiðigjalda. Þeir eiga erfitt með að sætta sig við að hafa verið hafnað í síðustu kosningum og að rökréttri reglu hlutanna, að þeirra…
Lesa meira Leiðrétting veiðigjalda og varðstaðan um sérhagsmuni
Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur lítið sem ekkert gert í því að styrkja stöðu leiklistarlífs í bænum á þessu kjörtímabili. Afleiðingarnar eru þær að leiklistarlíf Hafnarfjarðar er í vanda statt. Þetta er staðan sem blasir við þrátt fyrir að í málefnasamningi meirihlutans standi skýrum stöfum að aðstaða fyrir leikhús verði tryggð á kjörtímabilinu. Báðir flokkar…
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, nýtur yfirburðatrausts hjá kjósendum til að leiða næstu ríkisstjórn sem forsætisráðherra. Þetta sýna kannanir. Til þess að það nái fram að ganga verður Samfylkingin að fá sterka kosningu á laugardaginn og verða stærsti flokkurinn að loknum kosningum. Við breyttum flokknum og unnum planið í samstarfi við fólkið í landinu Undir forystu…
Lesa meira Sögulegt tækifæri til breytinga með Samfylkingunni








