Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar í byrjun mánaðarins lagði Samfylkingin fram fjölda tillagna sem allar stefndu að því að bæta hag og velferð Hafnfirðinga og að einfalda daglegt líf fólks í samræmi við upplegg málefnavinnu Samfylkingarinnar í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Tillögurnar voru fullfjármagnaðar og endurspegla skýra framtíðarsýn Samfylkingarinnar fyrir Hafnarfjörð. Þær sneru meðal annars að uppbyggingu fjölbreytts húsnæðis á nýjum byggingarsvæðum með áherslu á samstarf við óhagnaðardrifin leigufélög í þágu eldra fólks, námsmanna og tekjulægri hópa. Einnig lögðum við fram tillögur um hækkun frístundastyrks, að frítt yrði í strætó fyrir 12-17 ára ungmenni, bætt aðgengi fyrir fólk með fötlun og bættar samgöngur. Að auki má nefna tillögur vegna undirbúnings nýs menningarhúss og stækkunar Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Gamaldags pólitík meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks gerði það hins vegar að verkum að hann felldi eða vísaði frá nánast öllum tillögum okkar.
Samfylkingin setur mikilvæg mál á dagskrá bæjarstjórnar
Á kjörtímabilinu höfum við haldið meirihlutanum við efnið með málefnalegum hætti og verið óþreytandi við að setja mikilvæg málefni, sem skipta bæjarbúa verulegu máli, á dagskrá bæjarstjórnar. Þar má nefna mál sem snúa að velferð barna og ungmenna, velferð eldra fólks, málefnum heimilislausra, fjölbreyttri húsnæðisuppbyggingu þar sem félagslegar áherslur eru í forgrunni og margt fleira mætti tína til en því miður hafa þau langflest staðið í meirihlutanum.
Tækifæri til breytinga næsta vor
Bæjarbúar skynja að þörf er á breytingum við stjórn bæjarins og nýrri stefnu fyrir Hafnarfjörð í stað kyrrstöðunnar í boði meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Samfylkingin er með skýra sýn sem byggir á traustum grunni klassískrar jafnaðarstefnu. Við erum tilbúin til þess að láta verkin tala og leiða nauðsynlegar breytingar við stjórn bæjarins. Við göngum bjartsýn til móts við nýtt kosningaár með jafnaðarstefnuna og einlægan vilja til þess að gera Hafnarfjörð enn betri. Það er þörf á nýrri stefnu í Hafnarfirði og kjósendur hafa tækifæri til að velja nýtt upphaf með Samfylkingunni í bæjarstjórnarkosningum í maí næstkomandi.
Greinin birtist í Fjarðarfréttum 18.12.2025.

