Sveitarfélögin hafa veigamiklu hlutverki að gegna í þágu húsnæðisöryggis. Þau þurfa að tryggja nægjanlegt framboð lóða undir fjölbreytt húsnæði fyrir alla. Einnig bera þau miklar skyldur hvað varðar félagslegt húsnæði sem og í húsnæðismálum fatlaðs fólk. Það er mannréttindabrot að tryggja fólki ekki fullnægjandi húsnæði og fólk á ekki að búa við óöryggi í húsnæðismálum.
Erfiðar aðstæður hjá mörgum
Margt fólk býr hins vegar við mikið óöryggi í húsnæðismálum. Í því samhengi er hægt að nefna erlenda verkafólkið sem býr við ófullnægjandi aðstæður í íbúðarkytrum í iðnaðarhverfum. Við getum líka rætt stöðu lágtekjufjölskyldna sem hrökklast á milli ótryggra íbúða á ófullburða leigumarkaði. Og við getum talað um fólkið á biðlistunum eftir félagslegu húsnæði og fatlaða fólkið sem bíður einnig eftir húsnæði við hæfi á löngum biðlistum. Hér er svo sannarlega verk að vinna.
Hækkun íbúðaverðs og máttlítil ríkisstjórn
Ofan á þetta bætist svo stjórnlaus húsnæðismarkaður þar sem við höfum horft upp á gríðarlegar hækkanir á undanförnum misserum. Ungt fólki og fyrstu kaupendur eiga mjög erfitt um vik að komast inn á markaðinn. Máttlitlar tilraunir ríkisstjórnarinnar til að grípa inn í þessar aðstæður hafa litlu skilað og raunar hafa sumar aðgerðir hennar og Seðlabankans hreinlega ýtt undir hækkun húsnæðisverðs. Stjórnvöld verða að taka sig taki og koma böndum á húsnæðismarkaðinn og hugsa hann út frá þörfum almennings frekar en ágóðavon fjárfesta.
Kyrrstaðan í Hafnarfirði
Eftir átta ára forystu Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði er lítið um afrek í húsnæðismálum. Hafnarfjörður hefur rekið lestina í uppbyggingu íbúða á Höfuðborgarsvæðinu og má nefna sem dæmi að ekki einni íbúð hefur verið úthlutað í bænum af íbúðafélaginu Bjargi í Hafnarfirði. Íbúðaskorturinn hefur leitt til þess að á síðasta ári horfði bærinn fram á íbúafækkun í fyrsta sinn í tugi ára. Langir biðlistar eru eftir félagslegu íbúðarhúsnæði og ein birtingarmynd stöðunarinnar í Hafnarfirði er að lítið sem ekkert hefur gengið undanfarin ár að fjölga félagslegum íbúðum í eigu sveitarfélagsins.
Breytingar nauðsynlegar
Það má því draga þá ályktun að margt sé líkt með ríkisstjórninni og Sjálfstæðisflokknum í Hafnarfirði þegar litið er til húsnæðismála. Úrræðin og verkin eru af skornum skammti og áhugaleysi einkennir báða aðila. Þessu verður að breyta og það er tækifæri til þess að breyta stöðunni í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningum 14. maí næstkomandi með því að kjósa Samfylkinguna til áhrifa. Snúa verður vörn í sókn eftir átta ára kyrrstöðu á vakt Sjálfstæðisflokksins. Samfylkingin er tilbúin, veit hver vandinn er og er full eldmóðs til að vinna í þágu almennings í þessum mikilvæga málaflokki.
Greinin birtist fyrst á vef Vísis.is 3. febrúar 2022